Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 06. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjölsótt Lava Cup-mót Þróttar í Skotlandi
Mynd: Aðsend
Undanfarin ár hafa Skotar haldið hið fjölsótta alþjóðlega mót Lava Cup fyrir eldri knattspyrnumenn, 40 ára og eldri, í samstarfi við Þrótt í Reykjavík. Mótið er jafnan haldið í maímánuði og í ár öttu þar kappi yfir 20 lið frá 9 þjóðum á Falkirk-velli samnefnds liðs í Skotlandi. Markmið mótsins er að efla andlega og líkamlega heilsu leikmanna, styrkja tengslamyndun og safna fé fyrir góðgerðamál.

Íslandsvinurinn Marc Boal

Lava Cup hófst í Aberdeen árið 2022 sem tilraunaverkefni frumkvöðulsins og Íslandsvinarins Marc Boal í nánu samstarfi við eldri flokka Þróttar í Reykjavík. Þróttarar hafa heimsótt Skotland árlega í keppnisferð síðan 2018 og haft náin tengsl við Skotland áratugum saman gegnum David Moyes eldri og fleira gott fólk. Oldboys-hópur Þróttar hefur sömuleiðis spilað við mörg lið um allt Skotland gegnum árin auk þess að heimsækja Norður-England og keppa við eldri flokka Sunderlands á hinum 50 þúsund manna leikvangi Stadium of Light.

Lyngby Boldklub sigurvegari

Að þessu sinni mættu Þróttarar með þrjú lið á Lava Cup auk þess að spila sjálfir með sinn 40 manna hóp vítt og breitt um Skotland í ferðinni, meðal annars á Ibrox-æfingavelli Rangers í Skotlandi. Lyngby Boldklub bar sigur úr býtum á Lava Cup, en svo skemmtilega vildi til að fyrirliði liðsins er einmitt Íslendingur og sá var valinn besti leikmaður mótsins, Már Ívar Mörköre. Í mótinu er spilað um samnefndan hraunbikar, Lava Cup.
Slapp
Athugasemdir
banner