Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum leikmaður Arsenal dæmdur í fjögurra ára fangelsi
Jay Emmanuel-Thomas í leik gegn Breiðabliki á móti Aberdeen.
Jay Emmanuel-Thomas í leik gegn Breiðabliki á móti Aberdeen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jay Emmanuel-Thomas, fyrrum leikmaður Arsenal, var á dögunum dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir fíkniefnainnflutning.

Lögreglan á Bretlandseyjum lagði hald á mikið magn kannabisefna á Stansted flugvelli í Lundúnum í september á síðasta ári. Um 60 kíló af efnum fundust í tveimur ferðatöskum sem voru að koma frá Bangkok í Taílandi.

Andvirði efnisins voru tæplega 113 milljónir íslenskra króna.

Emmanuel-Thomas, sem var rekinn frá Greenock Morton í Skotlandi eftir handtökuna, var talinn hafa verið höfuðpaurinn á bak við smyglið.

„Þú verður núna þekktur sem glæpamaður. Þú varst atvinnumaður í fótbolta en hentir því öllu í burtu," sagði dómarinn, Alexander Mills, þegar Emmanuel-Thomas var dæmdur.

Emmanuel-Thomas er í dag 34 ára gamall. Hann var áður í akademíu Arsenal og lék þar fimm leik fyrir aðalliðið. Hann spilaði þá fyrir Queens Park Rangers, Bristol City og Aberdeen. Hann spilaði með Aberdeen á móti Breiðabliki í forkeppni Sambandsdeildarinnar árið 2021 og kom við sögu í leiknum á Laugardalsvelli.
Athugasemdir
banner