Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik. Samningurinn gildir út árið 2026.
Kristinn er 35 ára gamall og er uppalinn hjá Breiðabliki. Hann hefur spilað 313 leiki fyrir liðið í öllum keppnum og er markahæsti leikmaður liðsins í efstu deild. Hann hefur skorað 60 mörk.
Kristinn er 35 ára gamall og er uppalinn hjá Breiðabliki. Hann hefur spilað 313 leiki fyrir liðið í öllum keppnum og er markahæsti leikmaður liðsins í efstu deild. Hann hefur skorað 60 mörk.
Hann var í stóru hlutverki í öllum þremur Íslandsmeistaratitlum félagsins auk eins bikarmeistaratitils.
Hann hefur einnig leikið með FH hér á landi ásamt Halmstad, Columbus Crew og Sundsvall í atvinnumennsku frá 2012-2017.
Athugasemdir