Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Real Madrid varð fyrir valinu
Franco Mastantuono.
Franco Mastantuono.
Mynd: EPA
Franco Mastantuono, 17 ára gamall miðjumaður River Plate í Argentínu, hefur ákveðið að ganga í raðir Real Madrid.

Síðasta árið hefur hann spilað 61 leik og skorað tíu mörk fyrir aðallið River Plate, en þetta tímabil verður hans síðasta í Argentínu í bili því nú kallar Evrópuboltinn.

Paris Saint-Germain hefur leitt kapphlaupið en Real Madrid tók fram úr undir lokin. Það hefur verið draumur Mastantuono frá því hann var barn að spila fyrir Madrídarstórveldið.

Þessi bráðefnilegi leikmaður hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Manchester United.

Viðræður á milli félaganna eru núna hafnar en Mastantuono er með 55 milljón evra riftunarákvæði í samningi sínum.
Athugasemdir
banner