Adama Traore, hinn nautsterki leikmaður Wolves, skoraði eina markið í leik Wolves og Crystal Palace í kvöld.
Wolves vann leikinn með einu marki gegn engu og komst þannig áfram í fjórðu umferð FA bikarsins.
Markið sem Traore skoraði í kvöld var það fyrsta síðan í febrúar árið 2020 í öllum keppnum. Markið var hins vegar einkar glæsilegt.
Traore fékk þá sendingu frá Ruben Neves út á hægri kantinn. Hann sneri þá inn á völlinn og skaut föstu skotið með vinstri fæti upp í þaknetið. Butland var í boltanum en réði ekki við skotið sem var fast.
Markið má sjá með því að smella hérna.
Athugasemdir