Ída Marín Hermannsdóttir hefur þrátt fyrir ungan aldur tekið þátt í síðustu fjórum Íslandsmótum. Hún lék einn leik sumarið 2016, sjö leiki sumarið 2017 og síðustu tvö tímabil hefur hún leikið meirihluta leikja Fylkis.
Í vetur söðlaði hún um og gekk í raðir Vals. Ída hefur alls skorað ellefu mörk í 48 leikjum í deild og bikar með Fylki. Hún hefur þá leikið 27 yngri landsliðsleiki og skorað í þeim níu mörk. Ída sýnir í dag á sér hina hliðina.
Í vetur söðlaði hún um og gekk í raðir Vals. Ída hefur alls skorað ellefu mörk í 48 leikjum í deild og bikar með Fylki. Hún hefur þá leikið 27 yngri landsliðsleiki og skorað í þeim níu mörk. Ída sýnir í dag á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Ída Marín Hermannsdóttir
Gælunafn:
Aldur: 17 ára
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 14 ára
Uppáhalds drykkur: Vit hit
Uppáhalds matsölustaður: Apótekið
Hvernig bíl áttu:Opel
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Love island eða Friends
Uppáhalds tónlistarmaður: Harry styles eða Drake
Fyndnasti Íslendingurinn: Bryndís Arna
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Hindber, snickers og kiwi
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Hahahahahhahaha a eg að geyma hann í bílnum eða?
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Veit ekki með það
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Evelina Duljan
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Erfitt að gera upp á milli, hef haft marga frábæra þjálfara.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Natasha Anasi
Sætasti sigurinn: Með Fylki á móti ÍBV í 8 liða í bikarnum
Mestu vonbrigðin: Falla úr pepsi árið 2017
Uppáhalds lið í enska: Man U
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Áslaug Munda
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Hlín Eiríksdóttir
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Valdimar Þór Ingimundarsson
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Thelma Lóa sys
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Hermann Hreiðarsson
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Diljá Ýr myndi ég segja
Uppáhalds staður á Íslandi: Vestmannaeyjar
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Einhver gella sparkaði í andlitið mitt og ég rotaðist og nefbrotnaði
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Stilla vekjaraklukku
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, hef gaman af körfubolta og frjálsum
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Eins og staðan er núna er ég ekki að standa mig í stærðfræðinni
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég var 12 ára var ég stöddí vatnsrennibrautagarði á Spáni og renndi mér niður eina rennibraut og sundbuxuenar mínar rifnuðu og ég þurfti að hlaupa í gegnum allan garðinn á rassinum til að fá handklæði:/
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Cecilía, Bryndís og síðan skæri blað steinn með Rögnu og Örnu
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég bjó í 10 ár í Englandi
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Cecilía vegna þess að ég var alltaf pirruð út í hana þegar ég var yngri af því að hún fótbraut vinkonu mína óvart, síðan lenti ég með henni í herbergi í landsliðsferð og hún er núna ein af bestu vinkonum mínum :)
Hverju laugstu síðast: Hef ekki hugmynd
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun
Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur: Leyfi mér oftast að sofa út og bý mér síðan til einhvern gúrme morgunmat. Tek síðan hlaupin eða styrktaræfinguna samkvæmt prógrammi. Eftir það fer ég í sturtu og chilla síðan á tiktok í smá, fæ mér oftast booztbarinn með sys. Læri kannski í smá og horfi á mynd með fam og borða dinner.
Athugasemdir