Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   lau 08. júní 2019 16:19
Arnar Daði Arnarsson
Rúnar Már: Ég var alveg búinn á því
Icelandair
Rúnar Már.
Rúnar Már.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson var ánægður eftir 1-0 sigur Íslands gegn Albaníu á Laugardalsvelli í dag í undankeppni Evrópumótsins.

Rúnar Már var í byrjunarliðinu en fór af velli undir lok leiks fyrir Arnór Sigurðsson.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Albanía

„Ég er fínn. Ótrúlega en satt líður mér þokkalega í skrokknum. Maður finnur til í gömlum meiðslum en verð orðinn góður á morgun," sagði Rúnar sem segist hafa áttað sig á því í vikunni að hann gæti mögulega byrjað þennan leik.

„Þetta var rætt og ég vissi að það væri möguleiki á þessu og ég var undirbúinn undir það. Það er fínt að geta tæklað fleiri en eina stöðu. Ég leysti kantmanninn eins vel og hægt var. Það vita það allir að ég er ekki kantmaður en ég er tilbúinn að spila hvar sem er," sagði Rúnar sem segir úrslitin vera frábær.

„Ég held að við þurftum að halda hreinu í svona baráttuleik sem er mikið af návígjum og læti þá var það akkúrat það sem við þurftum."

„Ég held að það hafi sést að ég var alveg búinn á því síðustu 20 mínúturnar. Þetta eru öðruvísi hlaup en á miðjunni þetta eru lengri hlaup en ég hefði klárað mig út en það var fínt að fá Arnór inn með ferskar fætur. Það er svolítið langt síðan ég spilaði og hef verið mikið meiddur. Ég er ekkert í besta standinu sem ég hef verið í, en ég reyni að skila mínu," sagði Rúnar sem segist vera klár fyrir leikinn á þriðjudaginn gegn Tyrkjum.
Athugasemdir
banner
banner