Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 08. desember 2018 14:29
Ívan Guðjón Baldursson
England: Salah setti þrennu gegn Bournemouth
Mynd: Getty Images
Bournemouth 0 - 4 Liverpool
0-1 Mohamed Salah ('25)
0-2 Mohamed Salah ('48)
0-3 Steve Cook ('68, sjálfsmark)
0-4 Mohamed Salah ('77)

Mohamed Salah lék á alls oddi er Liverpool heimsótti Bournemouth í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Salah kom sínum mönnum yfir með rangstöðumarki í fyrri hálfleik og tvöfaldaði hann forystuna með glæsilegu einstaklingsframtaki skömmu eftir leikhlé.

Steve Cook, varnarmaður heimamanna, gerði skrautlegt sjálfsmark eftir fyrirgjöf Andy Robertson áður en Salah fullkomnaði þrennuna með öðru glæsilegu einstaklingsframtaki. Salah slapp í gegn og lék á Asmir Begovic í marki Bournemouth í tvígang.

Liverpool er á toppi úrvalsdeildarinnar eftir sigurinn en Manchester City á leik til góða á útivelli gegn Chelsea síðar í dag. Bournemouth er sem fyrr við hlið Manchester United og Everton í sjötta til áttunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner