Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 09. janúar 2019 22:10
Brynjar Ingi Erluson
PSG óvænt úr leik í franska deildabikarnum
Neymar skoraði í kvöld en PSG er samt sem áður úr leik
Neymar skoraði í kvöld en PSG er samt sem áður úr leik
Mynd: Getty Images
Þrír leikir fóru fram í 8-liða úrslitum franska deildabikarsins en Paris Saint-Germain er óvænt úr leik eftir 2-1 tap gegn Guingamp.

Neymar kom PSG yfir í leiknum með góðu marki áður en Guingamp fékk vítaspyrnu sem Yeni Ngabakoto skoraði úr áður en Marcus Thuram skoraði sigurmarkið úr annarri vítaspyrnu í uppbótartíma en Marcus er sonur Lillian Thuram sem er af mörgum talinn einn besti varnarmaður allra tíma.

Óvænt tap PSG gegn Guingamp en liðið er í 20. sæti frönsku deildarinnar og hefur aðeins unnið tvo leiki allt tímabilið.

Mónakó tókst hins vegar að komast í undanúrslitin með því að vinna Rennes eftir vítakeppni. Þá vann Bordeaux lið Le Havre með einu marki gegn engu.



Athugasemdir
banner
banner