Heimild: BBC
Vincent Kompany fyrirliði Manchester City segir að tækifærið til vinna Englandsmeistaratitlinn gegn erkifjendunum í Manchester United gefist bara einu sinni. Manchester City endurheimti 16 stiga forystu sína með 0-2 sigri á Stoke á mánudagskvöldið
David Silva skoraði bæði mörk Manchester City gegn fallbaráttuliði Stoke. Sigurinn þýðir að Manchester City þarf nú aðeins tvo sigra til tryggja sér Englandsmeistaratitlinn, næstu leikir liðsins eru gegn Everton og Manchester United.
„Allir í bláa helming Manchester-borgar vita að svona tækifæri kemur bara einu sinni á lífsleiðinni. Róum okkur samt. Það er enginn að fara að rétta okkur titilinn." sagði Vincent Kompany.
Athugasemdir