Núna klukkan 17:00 hefst leikur KA og Grindavíkur í 8.umferð Pepsi Max-deildar karla. Leikurinn fer fram í blíðskaparveðri á Akureyri.
Leikurinn verður mjög forvitnilegur fær þær sakir að fyrir tímabilið urðu hrein þjálfaraskipti milli þessara tveggja liða. Óli Stefán Flóventsson þjálfar nú KA á meðan að Tufa þjálfar Grindavík. Byrjunarliðin eru nú klár.
Heimamenn í KA gera þrjár breytingar á liði sínu frá síðasta leik gegn KR. Kristijan Jajalo kemur í markið í stað Arons Dags sem að er ekki í hóp í dag. Þá koma þeir Alexander Groven og Bjarni Aðalsteinsson inn í stað Ýmis Geirssonar og Almarrs Ormarssonar en þeir eru hvorugir í hóp. Það eru gleðitíðindi fyrir KA að Ásgeir Sigurgeirsson er á varamannabekknum en hann hefur verið að jafna sig á krossbandaslitum.
Tufa gerir tvær breytingar á liði Grindavíkur frá síðasta leik gegn Víking R. Rodrigo Mateo er í leikbanni og kemur þar með útúr liðinu ásamt Degi Inga Hammer. Inn í þeirra stað koma þeir René Joensen og Sigurjón Rúnarsson. Liðin má sjá hér að neðan.

Beinar textalýsingar:
16:00 Valur - ÍBV
16:00 ÍA - KR
17:00 KA - Grindavík
Byrjunarlið KA:
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
3. Callum George Williams
6. Hallgrímur Jónasson (f)
8. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
23. Steinþór Freyr Þorsteinsson
29. Alexander Groven
77. Bjarni Aðalsteinsson
Byrjunarlið Grindavíkur:
24. Vladan Djogatovic (m)
8. Gunnar Þorsteinsson (f)
9. Kiyabu Nkoyi
10. Alexander Veigar Þórarinsson
11. Elias Tamburini
13. Marc Mcausland
21. Marinó Axel Helgason
22. René Joensen
23. Aron Jóhannsson
26. Sigurjón Rúnarsson
30. Josip Zeba
Beinar textalýsingar:
16:00 Valur - ÍBV
16:00 ÍA - KR
17:00 KA - Grindavík
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir