Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   lau 16. maí 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Arbeloa: Klefinn er mjög heilbrigður
,,Strákarnir eru tilbúnir að vinna titla"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Álvaro Arbeloa bráðabirgðaþjálfari Real Madrid hefur fundið fyrir mikilli pressu sem fylgir stjórastarfinu hjá einu stærsta félagsliði fótboltasögunnar.

Miklu vonbrigðatímabili er að ljúka í Madríd þar sem liðinu hefur mistekist að hampa titli annað árið í röð. Það hefur verið mikið fjölmiðlafár í kringum liðið þar sem einhver hefur verið að leka upplýsingum úr búningsklefanum, leikmenn hafa lent í rifrildum við hvorn annan og hefur mikið verið talað um að ákveðnir leikmenn félagsins hafi alltof mikið vægi og geti orðið til þess að þjálfarar verði reknir.

Háværir orðrómar voru uppi um ósætti á milli Xabi Alonso og stjörnuleikmanna Real Madrid, sem varð til þess að Alonso var rekinn í janúar þegar Madrídingar voru ennþá með í öllum keppnum. Arbeloa tók við sem bráðabirgðaþjálfari og hefur róðurinn ekki verið auðveldari fyrir hann.

„Það er margt sagt í fjölmiðlum en ég vil leiðrétta eitt stórt mál. Það er ekki rétt að leikmenn liðsins hafi sýnt mér vanvirðingu. Þessa fjóra mánuði sem ég hef verið við stjórnvölinn hef ég séð mikið hjarta og mikinn sigurvilja þó að hlutirnir hafi ekki alltaf gengið upp. Þetta er flottur hópur af leikmönnum sem eiga ekki skilið að fá þessa útreið í fjölmiðlum," segir Arbeloa.

„Alvarlegasta við þetta allt saman er lekinn. Það sem gerist í klefanum á ekki að rata út, það er fyrir neðan allar hellur að einhver sé að leka upplýsingum. Við erum með flottan klefa. Það er ekki auðvelt að samþykkja tvö tímabil í röð án titils og við erum með leikmannahóp fullan af metnaðarfullum einstaklingum. Þú getur ekki spilað fyrir þetta félag ef þú ert ekki með mikinn metnað og sigurvilja.

„Klefinn hérna er mjög heilbrigður, hugarfarið er gott. Strákarnir eru tilbúnir að vinna titla aftur. Eina vandamálið er lekinn. Hver sem stendur á bakvið lekann er svikari við Real Madrid. Svikari við merki félagsins. Auðvitað verðum við að gera betur til þess að byrja að vinna keppnir á ný en þetta hefur verið erfitt tímabil. Við höfum verið að glíma við gífurlega mikil meiðslavandræði og töpuðum alltof mikið af stigum í leikjum sem við áttum að vinna. Við erum með ótrúlega gæðamikinn leikmannahóp, fullan af leikmönnum sem öll önnur félög myndu vilja hafa innan sinna raða. Við verðum að læra af mistökunum og gera betur á næstu leiktíð."


Arbeloa ræddi einnig Kylian Mbappé sem kom inn af bekknum og lagði upp í sigri gegn Real Oviedo. Mbappé sagði að leikslokum að Arbeloa hafi sagt honum að hann væri orðinn fjórði maður í goggunarröðinni en Arbeloa svaraði ummælum Mbappé með að benda á að Frakkinn hafi misskilið sig.

„Kylian Mbappé fórnaði miklu til þess að spila fyrir Real Madrid, við vitum það öll. Hann er að lifa drauminn, við höfum öll séð æskumyndir af honum í Real Madrid gallanum."

   14.05.2026 23:31
Segir að Mbappe hafi misskilið sig - „Ég ræð því hver spilar"

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 36 30 1 5 91 32 +59 91
2 Real Madrid 36 25 5 6 72 33 +39 80
3 Villarreal 36 21 6 9 67 43 +24 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 39 +21 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 36 14 6 16 31 37 -6 48
8 Real Sociedad 36 11 12 13 55 56 -1 45
9 Vallecano 36 10 14 12 37 43 -6 44
10 Athletic 36 13 5 18 40 53 -13 44
11 Valencia 36 11 10 15 39 51 -12 43
12 Sevilla 36 12 7 17 46 58 -12 43
13 Osasuna 36 11 9 16 43 47 -4 42
14 Espanyol 36 11 9 16 40 53 -13 42
15 Alaves 36 10 10 16 42 54 -12 40
16 Girona 36 9 13 14 38 53 -15 40
17 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
18 Mallorca 36 10 9 17 44 55 -11 39
19 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
20 Oviedo 36 6 11 19 26 56 -30 29
Slapp
banner