Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mán 16. júlí 2018 21:43
Kristófer Jónsson
Pálmi Rafn: Skúli helvítið truflaði mig
Pálmi Rafn skoraði tvö mörk í dag
Pálmi Rafn skoraði tvö mörk í dag
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KR, skoraði tvö mörk í 5-2 sigri sinna manna gegn Fylki í Egilshöllinni í dag.

„Við spiluðum langstærstan kafla mjög góðan leik og skorum fimm góð mörk. Ég er reyndar ekkert sérstaklega sáttur að hleypa inn tveimur mörkum en við getum ekki verið annað en sáttir að vinna Fylki 5-2." sagði Pálmi Rafn eftir leikinn.

KR-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og réðu öllum lögum á vellinum í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 4-1 fyrir KR en í þeim seinni komst Fylkir aðeins betur í leikinn.

„Við missum svolítið taktinn í seinni hálfleik og hleypum þeim inní leikinn. Miðað við hvað fyrri hálfleikurinn var góður þá vorum við ekki nægilega góðir í þeim seinni."

Eins og áður segir skoraði Pálmi tvö mörk í leiknum og reyndi að setja það þriðja með hjólhestaspyrnu í seinni hálfleik.

„Hann Skúli helvítið truflaði mig. Annars hefði þetta legið inni." sagði Pálmi um atvikið.

Nánar er rætt við Pálma í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner