Sky í Þýskalandi greinir frá því að Freiburg sé að spyrjast fyrir um ítalska kantmanninn Wilfried Gnonto sem er samningsbundinn Leeds United.
Gnonto þótti svakalega mikið efni þegar hann steig sín fyrstu skref með Leeds fyrir tæpum fjórum árum síðan. Hann var aðeins 18 ára gamall og var búist við að hann yrði næsta stórstjarnan frá Ítalíu en hefur mistekist að standast þær væntingar.
Gnonto er í dag varaskeifa í leikmannahópi Leeds og er hann með tvö ár eftir af samningi.
Leeds gæti því skoðað að selja hann fyrir rétta upphæð en Freiburg er í leit að liðsstyrk fyrir næstu leiktíð eftir að hafa tryggt sér þátttökurétt í Sambandsdeild Evrópu með frábærum sigri á RB Leipzig í lokaumferð þýska deildartímabilsins.
Freiburg er að eiga gott tímabil og mætir Aston Villa í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á miðvikudagskvöldið. Sky segir að Gnonto sé meðal efstu manna á óskalista Freiburg.
Gnonto er 22 ára gamall og vill fá meiri spiltíma heldur en er í boði hjá Leeds. Hann er aðeins búinn að byrja fjóra úrvalsdeildarleiki á tímabilinu.
Félög frá Sádi-Arabíu hafa einnig sýnt Gnonto áhuga og skellti Leeds um 40 til 50 milljón punda verðmiða á kantmanninn sinn. Það eru þó taldar afar litlar líkur á því að nokkuð félag sé reiðubúið til að greiða það háa upphæð fyrir Gnonto. Talið er að Leeds muni selja hann fyrir um 20 til 30 milljónir.



