Hinn 35 ára gamli Christian Kabasele er óvænt eftirsóttur eftir að hafa átt frábært tímabil í hjarta varnarinnar hjá Udinese í ítalska boltanum.
Kabasele, sem býr yfir reynslu úr enska boltanum eftir sjö ára dvöl í Watford, verður samningslaus í sumar og er Udinese að reyna að gera nýjan eins árs samning við Belgann.
Kabasele var valinn í úrtakshóp Belgíu fyrir HM í sumar en er ekki partur af 26-manna lokahópnum. Hann á tvo A-landsleiki að baki fyrir þjóð sína.
Parma, Cremonese og Standard Liège hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm um að tryggja sér þjónustu Kabasele á næstu leiktíð.
Udinese vill þó halda honum og er búið að bjóða honum eins árs framlengingu á samningi. Það er ákvæði í samningi Kabasele um að framlengja um eitt ár en Udinese ætlar að leyfa leikmanninum að taka ákvörðun.


