Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   sun 17. maí 2026 11:04
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho viðurkennir viðræður við Real Madrid
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Portúgalski þjálfarinn José Mourinho er búinn að staðfesta yfirvofandi félagaskipti sín til Real Madrid. Hann viðurkenndi samskipti á milli sín og spænska stórveldisins eftir lokaleik tímabilsins í Portúgal þar sem hann stýrði Benfica til sigurs gegn Estoril.

   16.05.2026 10:53
Mourinho tekur við Real Madrid


Mourinho leiddi Benfica í gegnum heilt deildartímabil án taps en liðið endaði aðeins í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar, á eftir Porto og Sporting CP, og fer því í deildarkeppni Evrópudeildarinnar næsta haust. Liðið endar með 80 stig úr 34 umferðum.

Mikið hefur verið rætt um áhuga Florentino Pérez og Real Madrid á að ráða Mourinho í þjálfarastarfið hjá sér í annað sinn eftir að hann stýrði liðinu frá 2010 til 2013. Mourinho hefur hingað til neitað fyrir að vera í viðræðum við Real en er búinn að breyta svari sínu og staðfesti viðræðurnar eftir lokaleik deildartímabilsins.

„Framtíð mín ætti að ráðast í næstu viku. Ég þarf tíma og ég þarf pláss. Ég þarf tíma til að taka ákvörðun varðandi framtíðina mína. Þetta gæti orðið mjög mikilvæg vika fyrir mig," sagði Mourinho eftir sigurinn gegn Estoril.

„Ég er ekki með samningstilboð á borðinu frá Real Madrid, en ég vil ekki fela mig og ljúga. Það eru samskipti við Real Madrid en þau hafa ekki farið beint í gegnum mig."

Þetta þýðir að forseti Real Madrid hefur sett sig í samband við Jorge Mendes umboðsmann Mourinho, en Mourinho er ennþá með eitt ár eftir af tveggja ára samningnum sem hann gerði við Benfica í fyrra.

Portúgalinn er með sérstakt riftunarákvæði í samningnum sem hljóðar upp á 3 milljónir evra. Það er ekki há upphæð fyrir félag eins og Real Madrid.

Sky Sports greinir frá því að Mourinho sé með fleiri kosti á borðinu heldur en að taka við Real Madrid. Benfica er búið að bjóða honum nýjan samning, portúgalska landsliðið hefur áhuga á honum og þá eru Sádarnir einnig spenntir að fá Mourinho yfir til sín.

   15.05.2026 18:23
Mourinho bað um frest til að svara tilboði Benfica


Portúgalska fótboltasambandið vill fá Mourinho til að stýra landsliðinu á HM á heimavelli 2030, en eins og staðan er í dag virðist Real Madrid vera langlíklegasti áfangastaðurinn. Frábært samband Mourinho við Pérez skemmir ekki fyrir.

„Við höfum verið nánir síðastliðin 13 ár en það þýðir ekki að ég hef verið partur af Real Madrid eða að ég muni vera það. Við erum mjög nánir en það þarf ekki að þýða neitt fyrir framtíðina mína."

Mourinho var með 72% sigurhlutfall á þremur árum hjá Real Madrid og hefur engum þjálfara tekist að ná þessum árangri eftir brottför Portúgalans frá félaginu, ekki einu sinni Zinedine Zidane eða Carlo Ancelotti. Undir stjórn Mourinho náði Real Madrid í 100 stig til að vinna spænsku deildina 2012 en þjálfarinn var látinn fara eftir titlalaust tímabil ári síðar.

Fyrir fimm árum munaði litlu að Mourinho hefði verið ráðinn aftur til Real Madrid en hann var búinn að skuldbinda sig við AS Roma og var þar í tvö og hálft ár.

   16.05.2026 12:00
Arbeloa: Mourinho er númer eitt!

Slapp
banner
banner