Fotbolti.net
16.05.26 - 20:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gísli Gotti pólskur meistari með Lech Poznan

Gísli Gottskálk í leik með Lech Poznan

Gísli Gottskálk í leik með Lech Poznan

Canon

Mynd: EPA

Lech Poznan tryggði sér pólska meistaratitilinn annað árið í röð eftir 3-1 sigur á Radomiak Radom í næst síðustu umferð deildarinnar í kvöld.

Gísli Gottskálk Þórðarson er leikmaður liðsins en hann hefur ekkert spilað í rúman mánuð vegna meiðsla. Hann hefur komið við sögu í 13 leikjum í deildinni, skorað tvö mörk og lagt upp tvö.
Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliði Valerenga sem vann Sarpsborg 3-2 í norsku deildinni. Valerenga er í 9. sæti meeð 11 stig eftir níu umferðir.

Davíð Kristján Ólafsson var ónotaður varamaður þegar Larissa vann Atromitos 2-1 í næst síðustu umferð grísku deildarinnar. Larissa er í mikilli fallhættu en liðið er þremur stigum frá öruggu sæti.

Hinrik Harðarson kom inn á sem varamaður þegar Odd tapaði 3-2 gegn Moss í næst efstu deild í Noregi. Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal sem gerði 2-2 jafntefli gegn Hodd. Odd er í 3. sæti með 16 stig eftir sjö umferðir en Sogndal er í 10. sæti með átta stig.

Logi Tómasson var ekki í leikmannahópi Samsunspor sem vann Goztepe 3-0 í lokaumferð tyrknesku deildarinnar. Samsunspor endar í 7. sæti með 51 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.