Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   lau 16. maí 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Guardiola léttur: Ég á eitt ár eftir af samningi
Mynd: EPA
Pep Guardiola var léttur í lund á fréttamannafundi í gær fyrir úrslitaleik FA bikarsins.

Guardiola stýrir Manchester City í úrslitaleik bikarsins fjórða árið í röð en City vann 2023 og tapaði svo tvisvar í röð.

   15.05.2026 13:36
„Kannski þarf ég að fara 24 sinnum á Wembley í viðbót“


Man City er að berjast um tuttugasta titilinn á einum áratugi undir stjórn Pep Guardiola.

„19 titlar á 10 árum er ekki slæmt," sagði Guardiola þegar hann var spurður út í árangurinn sinn hjá City og lét skemmtileg látbrögð fylgja með. „Ég hef verið skemmtilegur þjálfari. Ég hef verið fáránlega skemmtilegur. Það er ekki slæmt að vera að berjast um tuttugasta titilinn á tíu árum."

Guardiola var spurður hvort hann væri sorgmæddur að hugsa til þess að leikurinn gegn Chelsea verði hans síðasti á Wembley.

„Nei það er ekki möguleiki, ekki séns. Ég er ennþá með eitt ár eftir af samningi."

Það eru afar sterkir orðrómar á sveimi um að Pep Guardiola muni yfirgefa Man City í sumar og er Enzo Maresca talinn líklegasti arftakinn.

   14.05.2026 15:24
Tíðindi sem ýta undir að Guardiola gæti hætt hjá City í sumar



Slapp
banner