Newcastle United hefur mikinn áhuga á miðjumanninum Lamine Camara og er komið í viðræður við Mónakó um möguleg kaup á leikmanninum.
Camara er 22 ára gamall og hefur verið öflugur á miðjunni hjá Mónakó á tímabilinu. Hann hefur verið að spila aftarlega á miðjunni en hefur einnig tæknilega getu til að spila framar.
Liverpool og Chelsea hafa einnig verið orðuð við miðjumanninn í vor en Newcastle leiðir kapphlaupið.
Talið er að Mónakó sé reiðubúið til að samþykkja tilboð sem hljóða upp á 50 milljónir evra, sem samsvarar tæpum 45 milljónum punda.
Þess má geta að Camara er með 41 landsleik að baki fyrir Senegal þrátt fyrir ungan aldur.


