Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mán 18. mars 2019 21:00
Elvar Geir Magnússon
Peralada, Katalóníu
Birkir Bjarna: Formið gott þó spiltíminn sé lítill
Icelandair
Birkir á æfingu Íslands í dag.
Birkir á æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vitum lítið um Andorra liðið en vitum að það er erfitt lið að spila á móti, sérstaklega á útivelli á þessu gervigrasi," sagði landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason eftir æfingu á Spáni í dag.

Ísland er að búa sig undir leik gegn Andorra á föstudag og svo verður leikið gegn heimsmeisturum Frakklands á mánudag. Um er að ræða fyrstu tvo leikina í undankeppni EM.

Birkir fór ekki leynt með að hann er ekki spenntur fyrir því að spila á gervigrasinu í Andorra.

„Það er ekki eitthvað sem maður vill spila á, sérstaklega ekki eftir að maður heyrði að þetta er svolítið gamalt gervigras. En svona er aðstaðan og við verðum bara að búa okkur undir það og mæta almennilegir í þennan leik."

Birkir hefur þurft að sætta sig við mikla bekkjarveru hjá Aston Villa en telur þó að formið sitt sé í besta lagi.

„Ég hef spilað rosalega lítið síðustu tvo mánuði. En ég hef verið að æfa aukalega og reynt að halda mér í eins góðu formi og ég get. Mér finnst ég í mjög góðu formi."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner