Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. júlí 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Harry Maguire vill feta í fótspor Vidic og Ferdinand
Mynd: Getty Images
Harry Maguire, varnarmaður Leicester, vonast til að ganga í raðir Manchester United í sumar að sögn Sky Sports.

Nemanja Vidic og Rio Ferdinand voru leikmenn sem Maguire leit upp til á yngri árum en þeir mynduðu öflugt miðvarðapar hjá United.

Maguire vill feta í þeirra fótspor og spila með Manchester United samkvæmt frétt Sky.

Manchester United hefur tvívegis komið með tilboð í Maguire en Leicester hefur ekki ennþá viljað selja.

Leicester vill fá meira en 75 milljónir punda fyrir Maguire en hann yrði þá dýrasti varnarmaður sögunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner