Antonio Valencia verður ekki með Manchester United gegn Young Boys í Meistaradeildinni í kvöld.
Young Boys spilar heimaleiki sína á gervigrasi og United hefur áhyggjur af því að það fari illa í Valencia.
Young Boys spilar heimaleiki sína á gervigrasi og United hefur áhyggjur af því að það fari illa í Valencia.
Hinn 33 ára gamli Valencia missti af fyrstu tveimur leikjum tímabilsins vegna meiðsla á hné.
„Við ákváðum að taka Valencia ekki með því hnéð hans er ekki hné sem þarf á gervigrasi að halda," sagði Jose Mourinho stjóri Manchester United.
Athugasemdir