Fjórir leikmenn íslenska landsliðsins eru í liði HM í vali hjá lesendum BBC.
Á vef BBC hefur verið hægt að velja úrvalslið sitt á mótinu eftir fyrstu umferð riðlakeppninnar.
Á vef BBC hefur verið hægt að velja úrvalslið sitt á mótinu eftir fyrstu umferð riðlakeppninnar.
Hannes Þór Halldórsson, Ragnar Sigurðsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason eru allir í liðinu.
Ljóst er að íslenska liðið er vinsælt hjá lesendum BBC eftir 1-1 jafntefli við Argentínu.
Hannes er einnig í úrvalsliði fyrstu umferðarinnar hjá Bleacher Report en hann er eini Íslendingurinn í úrvalsliðinu þar.
Hér til hliðar má sjá úrvalsliðið hjá lesendum BBC.
Athugasemdir