Arsenal hefur fengið til sín Zayn Ali Salman sem var aðeins fjögurra ára gamall þegar félagið fékk hann inn í akademíuna sína.
Hann er yngsti leikmaður sem Arsenal hefur fengið.
Salman er núna fimm ára en hann sló fyrst í gegn á Instagram þar sem hann hefur verið kallaður 'Litli Messi'.
Hann er yngsti leikmaður sem Arsenal hefur fengið.
Salman er núna fimm ára en hann sló fyrst í gegn á Instagram þar sem hann hefur verið kallaður 'Litli Messi'.
Austin Schofield, fyrrum þjálfari hans, sagði við BBC:
„Við byrjuðum á að setja hann með krökkum á hans aldri en hann var betri en þeir allir, hann var sneggri og var með mun betri skot og sendingar."
Salman æfir með eldri og stærri krökkum en á ekki í vandræðum með það.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hann með Per Mertesacker, yfirmanni akademíu Arsenal.
Athugasemdir