Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 23. júní 2020 09:12
Elvar Geir Magnússon
McTominay skrifar undir til 2025
Scott McTominay.
Scott McTominay.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Scott McTominay hefur skrifað undir samning við Manchester United til 2025. Samningurinn er með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.

Þessi 23 ára leikmaður hefur verið í stóru hlutverki hjá Ole Gunnar Solskjær.

„Ég er gríðarlega ánægður með að hfa skrifað undir samninginn og taka þátt í framtíðinni með félaginu. Ég vil þakka stjóranum fyrir það traust sem hann hefur sýnt mér og öllum hjá félaginu fyrir að aðstoða mig við að komast á þennan stað," segir McTominay.

„Scott hefur staðið sig ákaflega vel síðan ég kom hingað og verið í stóru hlutverki. Við vitum að hans kostir geta hjálpað liðinu mikið á komandi árum. Hann er með rétta hugarfarið sem leikmaður Manchester United þarf að vera með," segir Solskjær.
Athugasemdir
banner