Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. september 2019 19:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Barcelona skoðar að kaupa Rapinoe
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur lýst yfir að fá til sín kantmanninn öfluga, Megan Rapinoe. Rapinoe er frá Bandaríkjunum og var valin best á HM í sumar.

Rapinoe er á mála hjá Seattle Reign í Bandaríkjunum. Rapinoe er sögð ætla að færa sig um set til Evrópu og Barcelona sé númer eitt á lista.

Rapinoe er ein af þremur leikmönnum sem getur verið valin best í heimi af FIFA. Verðlaunin verða veitt í kvöld.

Forráðamenn kvennaliðs Barcelona vita af þessum vilja Rapinoe og eru hrifnir af henni sem leikmanni. Talsmaður félagsins sagði liðið þó þurfa að hugsa sig um til þess að hrista ekki of mikið í leikmannahópnum sem er nú þegar vel mannaður.
Athugasemdir
banner
banner