Fyrrum fótboltamaðurinn Gary McAllister varð fyrir líkamsárás í Leeds um helgina. BBC segir frá.
McAllister, sem lék meðal annars með Leeds og Liverpool á sínum leikmannaferli, var kýldur í andlitið og þurfti að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi.
McAllister, sem lék meðal annars með Leeds og Liverpool á sínum leikmannaferli, var kýldur í andlitið og þurfti að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi.
McAllister starfar í dag sem aðstoðarþjálfari Steven Gerrard hjá Rangers í Skotlandi.
McAllister, sem er 54 ára, hafði snætt kvöldverð í Leeds með eiginkonu sinni þegar ráðist var á þau. Sauma þurfti 10 spor í andlit hans eftir árásina.
Hann var að bíða eftir leigubíl þegar ráðist var á hann.
Lögreglan í Jórvíkurskíri er með málið til rannsóknar.
Athugasemdir