Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. júní 2019 19:11
Arnar Helgi Magnússon
Cillessen búinn að standast læknisskoðun
Mynd: Getty Images
Hollenski markvörðurinn, Jasper Cillessen, hefur gengist undir og staðist læknisskoðun hjá spænska félaginu Valencia.

Barcelona og Valencia eru sögð ætla að skipta á markvörðum en Neto myndi þá ganga í raðir Barcelona.

Liðin myndu skipta á sléttu en báðir markverðir eru metnir á 30 milljónir evra. Cillessen myndi halda sömu launum á meðan Neto myndi tvöfalda sín laun.

Cillessen er sagður vilja spila fleiri leiki en á þremur árum hjá Barcelona hefur hann einungis komið við sögu í 32 leikjum. 24 þeirra hafa verið í spænsku bikarkeppninni.

Neto gekk í raðir Valencia árið 2017 og hefur verið aðalmarkvörður liðsins síðan þá.
Athugasemdir
banner
banner