Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. júní 2020 14:19
Elvar Geir Magnússon
Clyne yfirgefur Liverpool
Nathaniel Clyne.
Nathaniel Clyne.
Mynd: Getty Images
Hægri bakvörðurinn Nathaniel Clyne mun yfirgefa Liverpool á þriðjudaginn þegar samningur hans rennur út.

Hinn 29 ára Clyne hefur spilað 103 leiki fyrir Liverpool eftir að hann kom frá Southampton 2015.

Meiðsli hafa leikið hann grátt undanfarin tímabil en hann var um tíma á láni hjá Bournemouth.

Hægri bakvörður Liverpool númer eitt er Trent Alexander-Arnold og hægara sagt en gert að slá hann út.

Clyne er 29 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner