Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. apríl 2019 16:15
Elvar Geir Magnússon
Neymar dæmdur í þriggja leikja Evrópubann
Neymar er kominn í bann.
Neymar er kominn í bann.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Brasilíski fótboltamaðurinn Neymar hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann í Evrópukeppnum fyrir að láta dómara heyra það á Instagram eftir leik gegn Manchester United í Meistaradeildinni.

Neymar var allt annað en sáttur eftir að Paris Saint-Germain féll úr leik gegn United eftir dómarinn leitaði í VARsjánna í uppbótartíma og dæmdi United vítaspyrnu.

„Þetta er til skammar!" skrifaði Neymar á Instagram. „UEFA velur fjóra menn sem vita ekkert um fótbolta til að fara yfir atvikið hægt á myndbandi. Þetta var engan veginn hendi. Farið til fjandans!"

Neymar spilaði ekki leikinn vegna meiðsla og fylgdist með úr heiðursstúkunni. Nokkrum dögum áður hafði hann verið að djamma í heimalandi sínu, Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner