Stjarnan fékk Víkinga í heimsókn á Samsung völlinn í kvöld í 9. umferð Pepsí Max-deildar karla og skildu liðin jöfn, 1-1.
„Það eru blendin viðbrögð hérna eftir leik, gott að ná í stig gegn Stjörnunni sem er mjög gott lið. Mér fannst við virkilega sterkir í fyrri hálfleik, seinni hálfleikur var jafnari, bæði lið fengu færi og þetta var bara all in leikur. Við vildum fá þrjú stigin en heilt yfir er ég ekkert endilega ósáttur en mér finnst þetta samt tvö töpuð stig."
Sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga sem fannst sitt lið betri aðilinn í hörku leik.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 1 Víkingur R.
Víkingar fengu ótal margar hornspyrnur í leiknum og var Arnar svekktur að þeir nýttu ekki neina af þeim.
„Ég missti alveg töluna á hvað við fengum margar hornspyrnur í leiknum, við hefðum mátt nýta einhverja af þeim með alla okkar stóru stráka. En mér fannst þetta bara hörku leikur og skemmtilegur hérna í næpunni í Garðabænum, svo er bara aftur leikur við Stjörnuna í bikarnum á fimmtudaginn."
„Mér finnst það litlar líkur miðað við það sem maður les í blöðunum, en það er hrikalega gaman að hafa hann á æfingum, skemmtilegt fyrir strákana. Hann er með flott gæði og gefur mikið af sér æfingum en ég held að hugur hans stefni erlendis."
Sagði Arnar aðspurður hvort Rúrik Gíslason gæti verið að koma til Víkinga í glugganum.
Athugasemdir