Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. mars 2022 21:00
Victor Pálsson
„Ekkert vit í því að snúa aftur til Bayern eftir tímabilið"
Mynd: Getty Images

Joshua Zirkzee, leikmaður Bayern Munchen, hefur gefið sterklega í skyn að hann vilji ekki snúa aftur til þýska liðsins í sumar.


Zirkzee spilar með Anderlecht í Belgíu á láni og hefur skorað 15 mörk og lagt upp önnur níu í 38 leikjum í öllum keppnum.

Það er spilatími sem Zirkzee myndi ekki fá hjá Bayern en þessi tvítugi Hollendingur hefur samtals spilað 12 deildarleiki fyrir þýska stórveldið og skorað fjögur mörk.

Talið er Zirkzee sé fáanlegur í sumar en hann myndi kosta í kringum 10 milljónir evra.

„Ég tel að það sé ekki mikið vit í því að snúa aftur til Bayern eftir tímabil þar sem ég spilaði mikið," sagði Zirkzee.

„Ég vil bara fá að spila og eftir tímabilið þá skoða ég hvað er best fyrir mig og mun einnig ræða við Bayern."

„Við munum aðeins ræða saman eftir tímabilið, ég nýti tækifærið hér og það hefur alltaf verið markmiðið."


Athugasemdir
banner
banner
banner