820 miðar eru eftir á leik Íslands og Þýskalands í undankeppni HM kvenna á laugardaginn. Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net.
Allt stefnir í að 10 þúsund manns verði á vellinum en Ísland getur með sigri tryggt sér sæti á HM í fyrsta skipti.
Ljóst er að áhorfendamet verður sett á kvennalandsleik en fyrra metið var 7521 áhorfandi gegn Brasilíu í vináttuleik í fyrra.
Smelltu hér til að kaupa miða á Ísland-Þýskaland
Í hádeginu í dag hófst miðasala á leik Íslands og Belgíu í Þjóðadeild karla en liðin mætast á Laugardalsvelli eftir tvær vikur.
1025 miðar eru ennþá eftir á þann leik en búast má við að uppselt verði í dag miðað við þann hraða sem er í miðasölunni.
Smelltu hér til að kaupa miða á Ísland-Belgía
Athugasemdir