Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. september 2019 12:50
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Darmstadt gerði jafntefli
Stuðningsmenn Darmstadt.
Stuðningsmenn Darmstadt.
Mynd: Getty Images
Bochum 2 - 2 Darmstadt
1-0 Silvere Ganvuola ('10, víti)
1-1 Immanuel Hohn ('13)
2-1 Silvere Ganvuola ('25)
2-2 Marcel Heller ('85)

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn er Darmstadt heimsótti Bochum í þýsku B-deildinni í dag.

Heimamenn voru betri í fyrri hálfleik og verðskulduðu að leiða 2-1 þegar flautað var til leikhlés. Silvere Ganvuola gerði bæði mörk heimamanna.

Síðari hálfleikurinn var jafnari en sá fyrri og virkuðu gestirnir hættulegri. Það var lítið um færi en Marcel Heller náði að jafna á 85. mínútu.

Bæði lið eru við fallsvæðið eftir slaka byrjun á tímabilinu. Darmstadt er með sjö stig eftir átta umferðir, Bochum er með fimm stig.
Athugasemdir
banner
banner