Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. október 2018 11:33
Elvar Geir Magnússon
Tæknimaður BT Sport bjargaði lífi Hoddle
Simon Daniels bjargaði lífi Hoddle.
Simon Daniels bjargaði lífi Hoddle.
Mynd: BT Sport
Enskir fjölmiðlar segja frá því að Glenn Hoddle, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, sé kominn af gjörgæslu og farinn að ræða við fjölskyldumeðlimi sína.

Hoddle fékk hjartaáfall í höfuðstöðvum BT Sport á laugardaginn þar sem hann starfar sem sparkspekingur.

Simon Daniels, tæknimaður BT Sport, veitti skyndihjálp á staðnum og bjargaði lífi Hoddle.

„Robbie Savage, Paul Ince og Harry Redknapp voru allir að hrósa mér eftir þetta en ég sagði bara við þá: Ég gerði það sem ég þurfti að gera," segir Daniels.

„Ég er mjög ánægður með að hann sé núna í góðum höndum sérfræðinga og að ástand hans sé orðið betra."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner