Framarar unnu frábæran 4-3 sigur á Breiðabliki í 9. umferð Bestu deildar karla í dal draumanna í gær. ÍA vann á meðan 1-0 útisigur á FH.
Kennie Chopart fór hamförum hjá Frömurum sem urðu fyrsta liðið til að vinna Blika á tímabilinu.
Ómar Björn Stefánsson gerði sigurmark Skagamanna gegn FH-ingum.
FH er enn án sigurs í Bestu deildinni eftir þessa níu leiki og Jóhannes Karl Guðjónsson í sjóðandi heitu sæti í Krikanum.
Hægt er að sjá öll mörkin úr leikjum tveimur hér fyrir neðan.

