Ítalski fótboltasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir að Instagram-færsla egypska sóknarmannsins Mohamed Salah hafi spilað stóra rullu í brottrekstri Arne Slot hjá Liverpool.
Salah og Slot elduðu grátt silfur hjá Liverpool á síðustu leiktíð.
Slot tók Salah út úr liðinu undir lok síðasta árs og það féll ekki sérstaklega vel í kramið hjá Salah, sem mætti í viðtal við fjölmiðla og skaut þar föstum skotum á Slot.
Egyptinn ýjaði að því að hann gæti farið frá Liverpool í janúarglugganum en þeir náðu að slíðra sverðin, að minnsta kosti í nokkra mánuði, áður en Salah birti umdeilda færslu á Instagram um miðjan maí.
Þar gagnrýndi hann leikstíl Slot og kallaði eftir því að liðið færi aftur í rokk og ról-boltann sem það spilaði undir stjórn Jürgen Klopp.
Margir liðsfélagar Salah líkuðu við færsluna og segir Romano að hún hafi haft veruleg áhrif á ákvörðunina um að reka Slot.
Stjórn Liverpool tók margt inn í myndina áður en hún tók ákvörðun í dag.
Andoni Iraola mun taka við keflinu af Slot. Hann er í viðræðum við félagið og má búast við að hann verði kynntur til leiks á næstu sólarhringum.


