Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 14:17
Brynjar Ingi Erluson
Tilkynna kaupin á Paz eftir kosningarnar
Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid mun tilkynna kaupin á argentínska sóknartengiliðnum Nico Paz eftir forsetakosningarnar en þessu heldur spænski miðillinn AS fram.

Forsetakosningarnar fara fram 7. júní og er líklegasta niðurstaðan sú að Florentino Perez verði endurkjörinn. Þetta verða fyrstu forsetakosningarnar hjá Real Madrid síðan 2006 þegar Ramon Calderon hafði betur gegn Perez.

Öll einbeiting er á kosningunum en eftir þær mun Real Madrid koma með nokkrar tilkynningar og verða kaupin á Nico Paz þá gerð opinber.

Real Madrid hefur frest til loka júní til að virkja endurkaupsákvæði í samningi Paz hjá Como, en hann er fáanlegur fyrir aðeins 9 milljónir evra.

Ef Perez hefur sigur í kosningunum verður Jose Mourinho gerður að þjálfara liðsins, en óvíst er hvað félagið gerir ef Riquelme vinnur óvæntan sigur.

Riquelme hefur að minnsta kosti lofað því að kaupa tvo heimsklassa leikmenn úr sama liðinu. Hann hefur sagt að annar þeirra sé í spænska landsliðinu og að þeir leiki báðir með sama félagsliði. Af þeim ummælum má álykta að Rodri sé annar þeirra, en spurningin er þá hver hinn leikmaðurinn er.
Slapp
banner
banner