Brottrekstur Arne Slot frá Liverpool markar ótrúleg hrun Hollendingsins, aðeins ári eftir að hafa gert liðið að Englandsmeisturum á fyrsta tímabili sínu. Phil McNulty hjá BBC fer yfir tíma Slot og hvað fór úrskeiðis á þessum tveimur árum.
Slot var ráðinn til Liverpool sumarið 2024 etir að Jürgen Klopp hætti með liðið.
Það var stórt skarð að fylla enda hafði Klopp rifið Liverpool upp úr meðalmennskunni og komið því aftur í röð fremstu liða heims.
Á fyrsta tímabili Slot varð liðið Englandsmeistari, en því skal þó haldið til haga að hann tók við sterkum leikmannahópi af Klopp og gerði Slot engar stórkostlegar breytingar á leikstílnum.
Slot var ekki bara farþegi á fyrsta tímabilinu. Hann róaði aðeins liðið, kom með meiri stjórn í spilið og gerði mikilvægar taktískar breytingar. Ryan Gravenberch varð lykilmaður í liðinu sem varnarsinnaður miðjumaður og þá var Luis Díaz áhrifamikill í fremstu víglínu auk þess sem Mohamed Salah átti besta tímabil sitt fyrir félagið. Liðið varð skipulagðara og skilvirkara, jafnvel þó það var minni kaós og sprengikraftur í liðinu en það var undir Klopp.
Á síðasta tímabili Klopp endaði Liverpool níu stigum frá toppnum, en Slot breytti því og ósanngjarnt að segja að Klopp hafi átt þennan titil.
Urðu leikmannakaupin Slot að falli?
Sumarið 2025 voru margar glórulausar ákvarðanir teknar. Liverpool eyddi 450 milljónum punda á leikmannamarkaðnum, en leit veiklulegra út eftir kaupin og í algeru ójafnvægi. Sænski framherjinn Alexander Isak var keyptur fyrir metfé, en átti erfitt með að halda sér heilum. Florian Wirtz sýndi gæði inn á milli, en náði aldrei aðlagast leikkerfinu á meðan Hugo Ekitike var einn af fáum sem náði að heilla.
Félagið tókst aldrei á við varnarmannakrísuna og hefur í raun ekki gert í mörg ár. Það missti af Marc Guehi undir lok sumargluggans, sem var eitt af aðalskotmörkum félagsins á meðan frammistaða Ibrahima Konate og Virgil van Dijk fór niður á við. Konate var slakur og Van Dijk berskjaldaðri. Salan á Jarell Quansah til Bayer Leverkusen varð til þess að Liverpool var með fáa möguleika á bekknum og brotthvarf Trent Alexander-Arnold og Luis Díaz höfðu meiri áhrif en gert var ráð fyrir.
Frammistaða reynslumeiri leikmanna liðsins dalaði einnig. Van Dijk og Salah fengu nýja samninga en hvorugur þeirra náði sömu hæðum og á tímabilinu á undan. Salah, sem var tekinn út úr liðinu hjá Slot undir lok ársins, lét allt flakka í fjölmiðlum og jók það enn á pressuna á Slot á tíma þar sem úrslitin voru ekki að skila sér.
Fráfall Jota og endalok Slot
Fráfall portúgalska sóknarmannsins Diogo Jota hafði veruleg áhrif á Liverpool, en hann lést í hræðilegu bílslysi í byrjun júlí. Hann var á leið í ferju sem átti að flytja hann til Bretlandseyja þegar Lamborghini-bifreið hans valt. Harmleikurinn hafði mikil áhrif á félagið, leikmannahópinn og stuðningsmennina.
Að lokum má rekja fall Slot til samblands af slæmum leikmannakaupum, taktískri óvissu, meiðslum, dvínandi frammistöðu reynslumeiri leikmanna og andlegu álagi. Stjóri sem hafði virst fullkominn arftaki Klopp stóð skyndilega frammi fyrir því að geta ekki stöðvað hnignun Liverpool.
Arne Slot hefur nú yfirgefið Anfield, aðeins ári eftir að hafa verið hylltur sem hetja.


