Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 08:00
Elvar Geir Magnússon
Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool
Powerade
Pierre Kalulu er orðaður við Man Utd.
Pierre Kalulu er orðaður við Man Utd.
Mynd: EPA
Villa vill ekki missa Rogers.
Villa vill ekki missa Rogers.
Mynd: EPA
Franskur varnarmaður orðaður við Manchester United, Iraola tekur við Liverpool, Aston Villa hefur ekki í hyggju að selja Morgan Rogers og Barcelona vill enn tryggja sér Rashford. Það er nóg í gangi í slúðrinu.

Njósnarar Manchester United hafa fylgst með franska varnarmanninum Pierre Kalulu (25) hjá Juventus. Ítalska félagið gæti þurft að selja eftir að hafa mistekist að komast í Meistaradeildina. (Corriere dello Sport)

Portúgalski miðjumaðurinn Mateus Fernandes (21) mun yfirgefa West Ham eftir fall liðsins. Manchester United og Arsenal hafa sýnt áhuga og þá fylgjast Liverpool og Paris Saint-Germain með þróun mála. (Teamtalk)

Andoni Iraola hefur gert munnlegt samkomulag við Liverpool um tveggja ára samning. (The Athletic)

Aston Villa ætlar að gera allt til að reyna að halda sóknarmiðjumanninum Morgan Rogers (23) enda er félagið á leið í Meistaradeildina. Arsenal er meðal félaga sem vilja fá leikmanninn. (Telegraph)

Brasilíski miðjumaðurinn Ederson (26) mun gera fjögurra ára samningi með ákvæði um ár til viðbótar hjá Manchester United. Atalanta hefur samþykkt 35 milljóna punda tilboð United. (BBC)

Arsenal og Bayern München hafa áhuga á þýska bakverðinum Nathaniel Brown (22) hjá Eintracht Frankfurt. (The Athletic)

Manchester City og Chelsea hafa áhuga á vængbakverðinum Andrea Cambiaso (26) hjá Juventus. Barcelona fylgist einnig með stöðunni hjá ítalska landsliðsmanninum. (Gazzetta dello Sport)

Liverpool og Paris Saint-Germain vilja fá kantmanninn Yan Diomande (19) en þýska félagið trúir að leikmaðurinn verði hjá þeim á næsta tímabili og geri endurbættan samning. (Sky Sports Þýskalandi)

Barcelona vill enn tryggja sér Marcus Rashford (28) frá Manchester United. Bayern München, Newcastle, Tottenham og Aston Villa hafa einnig áhuga á enska landsliðsmanninum. (The I)

Juventus gæti gert tilboð í sóknarleikmanninn Justin Kluivert (27) hjá Bournemouth ef félaginu mistekst að fá Brahim Diaz (26) frá Real Madrid.(Gazzetta dello Sport)

Aston Villa, Atletico Madrid og Borussia Dortmund hafa áhuga á þýska sóknarmanninum Nicolo Tresoldi (21) sem átti gott tímabil með Club Brugge í Belgíu. (The Athletic)

Real Madrid er að tryggja sér bakvörðinn Denzel Dumfries (30) frá Inter. (The Athletic)
Slapp
banner
banner
banner