Brynjar Skúlason, þjálfari Hugins var ekki ánægður eftir 3-0 tap sinna manna gegn Haukum í Hafnarfirði í dag.
Fjórða tap Hugins í Inkasso-deildinni í röð staðreynd og liðið með þrjú stig eftir fimm umferðir.
Fjórða tap Hugins í Inkasso-deildinni í röð staðreynd og liðið með þrjú stig eftir fimm umferðir.
Lestu um leikinn: Haukar 3 - 0 Huginn
„Við verjumst eins og aular þrisvar sinnum og fáum á okkur þrjú mörk. Við skutum tvisvar sinnum í stöng og ég veit ekki hvað við fengum mörg færi til að skora mörk. Mér finnst við vera góðir í öllu nema því sem skiptir mestu máli, það er að halda hreinu og skora mörk," sagði Brynjar sem segir þetta vera lang lélegasta leik liðsins í langan tíma.
„Það er óhætt að segja það. Samt fengum við hrúu af færum til að skora mörk en heilt yfir er þetta lang lélegasti leikurinn okkar, í langan langan tíma," sagði Brynjar sem viðurkenni að það sé áhyggjuefni að liðið sé ekki að skora mörk. Eitt mark í síðustu fimm leikjum Hugins í deild og bikar staðreynd.
„Það er áhyggjuefni að við skorum ekki mörk. Jákvæða við það er að við erum allavegana að fá færi til að skora mörk. Við þurfum að setja hann réttu megin við stöngina."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.






















