Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
Alli Jói: Ekki gleyma að þær eru Íslandsmeistarar
Ian Jeffs: Fannst þetta ekki jafn fyrri hálfleikur
Jón Óli um meiðsli og litla breidd: „Það situr gríðarleg þreyta í leikmönnum“
Edith stefnir á A-landsliðið
Matti Guðmunds svekktur: Vantar betri ákvörðunartökur á síðasta þriðjungi
Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi: Ekkert viss um að margir komi hérna og sæki stig
Gylfi: Ætla óska eftir því að Ingibjörg Lúcía fari að skora flottari mörk en þetta
Óskar Smári: Á endanum þegar þú bankar svona fast þá hljóta dyrnar að opnast
Anton Ingi svekktur þrátt fyrir fyrsta stigið
FH svaraði áfallinu með stórsigri: Þessi leikur var fyrir Kötlu
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
   fös 10. apríl 2026 16:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Birnir Snær Ingason samdi við Stjörnuna síðasta haust.
Birnir Snær Ingason samdi við Stjörnuna síðasta haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Elísabetarson er þjálfari Stjörnunnar.
Jökull Elísabetarson er þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Emil Atlason er mjög öflugur framherji. Margir spá því að hann berjist um markakóngstitilinn.
Emil Atlason er mjög öflugur framherji. Margir spá því að hann berjist um markakóngstitilinn.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, ræddi við Fótbolta.net eftir að hann dró KR sem andstæðing í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær.

Hann ræddi um leikinn gegn KA sem fram fer á Greifavellinum á sunnudag og einnig um viðureignina við KR, en liðin munu mætast tvisvar með stuttu millibili; fyrst í deild og svo bikar.

Í kjölfarið var hann svo spurður út í Birni Snæ Ingason og Emil Atlason, sem margir eru spenntir fyrir að sjá spila saman í Stjörnuliðinu. Birnir lagði upp tvö mörk fyrir Emil gegn Selfossi síðasta sunnudag. Þeir spiluðu báðir í vináttulandsleiknum í Mexíkó í vetur.

„Emil er mjög sterkur og var mikið frá í fyrra, en við erum með annan sterkan senter (Andra Rúnar Bjarnason). Það er auðvitað alltaf gott að sjá menn tengja. Við höfum séð það líka í vetur, þeir hafa báðir spilað mjög vel. Birnir hefur fallið mjög vel inn í liðið, bæði á vellinum og inn í hópinn."

„Við erum með skemmtilegt sóknarlið og erum að spila skemmtilegan fótbolta. Ég held að Stjörnumenn megi alveg vera spenntir að mæta á völlinn í annarri umferð."
Stjarnan tekur á móti FH í 2. umferð deildarinnar 17. apríl.

Í leikmannakönnun var Birnir Snær kosinn sá leikmaður sem væri skemmtilegastur innan og utan vallar.

„Ég skil það alveg, ég er ekki mikið á samfélagsmiðlum þannig ég sé ekki allt sem hann er að gera þar. En hann hefur komið mjög skemmtilega inn í hópinn og er að gefa af sér. Hann er bæði skemmtilegur karakter og er með mikla reynslu og öflugur leikmaður."

Yrði viðunandi en ætla sér töluvert stærri hluti
Stjörnunni er spáð 2.-3. sæti í flestum spám. Hvað væri viðunandi niðurstaða í sumar?

„Ég held að eins og spáin sé sett upp þá væri mjög óeðlilegt að halda því fram en að það sé ekki bara viðunandi. Ég held að spáin sé eðlileg. Síðustu 2-3 ár þá hafið þið (sem spáið) tekið efstu 2-3 sætin frá fyrir önnur lið (Víking, Val og Breiðablik). Við höfum samt sem áður verið að enda í topp þremur. Það er viðunandi, en við ætlum okkur hærra. Við höfum trú á því að við getum gert meira, ætlum okkur töluvert stærri hluti. Það verður skemmtilegt að enda ofar en spáin segir til um, eins og við höfum kannski oft gert," segir Jökull.

Hann segir þá að markmið Stjörnunnar í bikarnum sé ekki flókið, það sé að vinna bikarinn. Stjarnan hefur tvisvar í röð dottið út í undanúrslitum keppninnar.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner