Það voru ýmsar reglubreytingar ákveðnar eftir fund fótboltayfirvalda heimsins og munu þær taka gildi í íslenska boltanum í kvöld, þegar Íslandsmeistarar Víkings R. taka á móti Breiðabliki í risaslag í opnunarleik nýs tímabils í Bestu deildinni.
Reglurnar taka einnig gildi í Lengjubikarnum í dag og er þeim skipt í marga hluta, þó að ein reglan sé um VAR og hefur því ekki áhrif á íslenska boltann.
Helstu reglubreytingarnar snúa að flæði leiksins, þar sem leikmenn hafa nú aðeins tíu sekúndur til að yfirgefa völlinn þegar þeim er skipt útaf. Þá þurfa leikmenn að vera útaf vellinum í eina mínútu áður en þeim er hleypt aftur inn eftir meiðsli sem kalla á aðhlynningu sjúkraþjálfara.
Einnig hefur verið settur tímarammi á markspyrnur og innköst. Lið hafa einungis fimm sekúndur til að framkvæma þessi leikatriði áður en andstæðingarnir fá boltann dæmdan til sín. Einhverjir óttast, og aðrir vona, að löng innköst muni tilheyra sögunni eftir þessa breytingu.
Sjáðu reglubreytingarnar í heild sinni
31.03.2026 16:30
Reglubreytingarnar sem taka gildi á HM og í Bestu deildinni


