Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   fös 10. apríl 2026 13:30
Elvar Geir Magnússon
Áfram í agabanni þrátt fyrir afsökunarbeiðni
Enzo Fernandez.
Enzo Fernandez.
Mynd: EPA
Liam Rosenior.
Liam Rosenior.
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, hefur staðfest að agabann Enzo Fernandez standi þrátt fyrir að leikmaðurinn hafi beðið félagið afsökunar.

Enzo hefur daðrað við Real Madrid opinberlega og Chelsea setti hann í tveggja leikja agabann. Hann hefur afplánað fyrri leikinn og verður heldur ekki með gegn Manchester City á sunnudag.

Enzo sagðist ekki vita hvort hann yrði áfram hjá Chelsea og Rosenior sagði hann hafa farið yfir strikið með ummælum sínum.

„Við höfum spjallað saman nokkrum sinnum. Hann hefur beðið mig afsökunar og félagið. Það er stór leikur á sunnudag og við förum nánar í þetta eftir hann. Fólk gerir mistök," segir Rosenior.

„Hann gerði mistök og við getum ekki horfið frá refsingunni. Hann spilar ekki á sunnudag en verður vonandi stór hluti af hópnum þegar horft er fram veginn. Fótbolti er liðsíþrótt, þetta snýst ekki um einstaklinga."

Engin umræða hefur átt sér stað hjá Chelsea um að selja Fernandez og hann er samningsbundinn til 2032.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner
banner