Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
banner
   fös 10. apríl 2026 17:00
Snæbjört Pálsdóttir
„Ég sagði við Fanneyju, eigum við ekki bara að sjást í úrslitunum"
Eimskip
Guðrún Arnardóttir segir sér líða afar vel hjá Hammarby í Svíþjóð.
Guðrún Arnardóttir segir sér líða afar vel hjá Hammarby í Svíþjóð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún mun mæta íslenskum landsliðsfélögum sínum í stórleikjum á næstu vikum.
Guðrún mun mæta íslenskum landsliðsfélögum sínum í stórleikjum á næstu vikum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Arnardóttir segir sér líða afar vel hjá sænska stórliðinu Hammarby þar sem hún hefur fest sig í sessi og er nú ein af fyrirliðum liðsins.

„Mér líður bara ótrúlega vel, ég er ótrúlega sátt þarna og ég finn að ég hef ótrúlega gaman að því að vera þarna. Líður ótrúlega vel og þykir strax ótrúlega vænt um klúbbinn,“ sagði Guðrún.


Hún segir tímabilið hafa verið krefjandi en skemmtilegt.

„Við erum búin að spila rosalega þétt frá síðasta glugga en það er líka búið að vera stórir leikir og mikilvægir leikir. Svona leikir sem maður vill fá að spila og þeir eru búnir að ganga vel, þannig ég hef ekki undan neinu að kvarta.“

Guðrún hefur einnig fengið aukið hlutverk hjá félaginu og er nú hluti af fyrirliðahópnum.

„Maður er náttúrulega bara maður sjálfur og maður tekur því hlutverki sem maður fær innan liðsins og þarna er ég í því hlutverki.“

„Ég kem bara inn sem ég sjálf og reyni að setja mark mitt á hópinn með mínum eiginleikum. Það er auðvitað alltaf heiður að fá að vera í fyrirliðahópnum og fá það traust frá þjálfaranum og hópnum. Það breytir í rauninni engu þannig þó það sé heiður.“

Framundan eru stórir leikir hjá Hammarby þar sem Guðrún mun mæta landsliðsfélögum sínum, Thelmu Karen Pálmadóttur og Fanneyju Ingu Birkisdóttur.

„Já við gerum það alveg, við erum alveg vinkonur hér þó að við séum andstæðingar inn á vellinum í einhverjum leikjum.“

„Ég sagði einmitt við Fanneyju fyrir undanúrslitin, eigum við ekki bara að sjást í úrslitunum, þannig að við fórum bara eftir því plani.“

Næstu vikur verða því viðburðaríkar hjá Guðrúnu.

„Þetta verður bara gaman. Við náttúrlega munum mæta þeim rosa mikið, við mætum þeim tvisvar í úrslitunum í Evrópubikarnum og við mætum þeim í úrslitum í bikarnum og líka í deildinni, þannig ég mun sjá mikið af þeim næstu mánuði eða svo.“

„Þetta eru leikirnir sem maður vill fá að taka þátt í og gaman að geta aðeins djókað og rætt það hér með þeim.“


Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Slapp
banner