Thomas Tuchel var í Madríd í gær og horfði á skemmtilegan leik Real Madrid og Bayern München, sem endaði 1-2.
Það styttist í HM og Tuchel var að fylgjast með Trent Alexander-Arnold og Jude Bellingham, leikmönnum Real Madrid, ásamt enska landsliðsfyrirliðanum Harry Kane sem skoraði fyrir Bayern München í leiknum.
Það styttist í HM og Tuchel var að fylgjast með Trent Alexander-Arnold og Jude Bellingham, leikmönnum Real Madrid, ásamt enska landsliðsfyrirliðanum Harry Kane sem skoraði fyrir Bayern München í leiknum.
Von Trent um að fara með á HM verður sífellt veikari en hann var ekki valinn í síðasta landsliðshóp. Tuchel hefur efast um varnarleikinn hjá honum.
„Þetta var erfið ákvörðun. Trent er stórt nafn en ég veit hvað hann kemur með að borðinu og valdi aðra að þessu sinni. Það er hörð samkeppni um sæti í flugvélinni," sagði Tuchel eftir valið.
Phil McNulty, yfirmaður fótboltafrétta hjá BBC, segir að Trent hafi alls ekki styrkt sína stöðu í leiknum í gær.
„Alexander-Arnold var slakur í fyrri hálfleik, tapaði boltanum of oft og var næstum búinn að gefa Bayern mark með sendingu sem fór beint á Michael Olise. Hann missti svo einbeitinguna þegar fyrrum liðsfélagi hans hjá Liverpool, Luis Díaz, kom Bayern yfir," segir McNulty.
„Tuchel hefur lýst yfir áhyggjum sínum af varnarleik Alexander-Arnold og ástæðan sást í gær. En svo þegar Real vaknaði loksins var það Alexander-Arnold sem átti hættulegar sendingar áður en hann sendi inn lága fyrirgjöf sem Kylian Mbappe skoraði eftir. Þetta var Alexander-Arnold í hnotskurn og óstöðugleiki hans endurspaglaðist í sendingahlutfalli hans upp á 69,2%, sem var lægsta meðal allra í leiknum."


