Rayo Vallecano 3 - 0 AEK
1-0 Ilias Akhomach ('2 )
2-0 Unai Lopez ('45+2 )
3-0 Isi Palazon ('74 , víti)
1-0 Ilias Akhomach ('2 )
2-0 Unai Lopez ('45+2 )
3-0 Isi Palazon ('74 , víti)
Rayo Vallecano er á góðri leið með að tryggja sér sæti í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar eftir góðan sigur á heimavelli gegn gríska stórveldinu AEK frá Aþenu.
Ilias Akhomach náði forystunni fyrir heimamenn snemma leiks þegar hann fékk boltann á góðum stað innan vítateigs eftir misheppnaða pressu hjá AEK.
Rayo var sterkara liðið en gestirnir frá AEK fengu góð færi til að skora sem þeir nýttu sér ekki. Staðan hélst 1-0 þar til í uppbótartíma fyrri hálfleiks, þegar Unai López skoraði eftir aðra misheppnaða pressu hjá AEK.
López fylgdi marktilraun Akhomach eftir með marki af stuttu færi svo staðan var 2-0 í leikhlé.
Heimamenn voru með fulla stjórn á leiknum í afar bragðdaufum seinni hálfleik. Isi Palazón innsiglaði sigur Vallecano með marki úr vítaspyrnu eftir að dæmd var hendi, svo lokatölur urðu 3-0.
Vallecano er í frábærri stöðu fyrir seinni leikinn í Grikklandi og mun sigurlið viðureignarinnar mæta annað hvort Mainz eða Strasbourg í undanúrslitum.


