Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   fös 10. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Rómverjar þurfa sigur í kvöld
Mynd: EPA
AS Roma tekur á móti nýliðum Pisa í eina leik kvöldsins í ítalska boltanum og þurfa heimamenn á sigri að halda eftir slakt gengi síðustu vikna.

Rómverjar hafa aðeins unnið einn leik af síðustu sjö í öllum keppnum og þarf Gian Piero Gasperini að finna einhverja leið til að rífa lærlinga sína í gang.

Roma er í harðri baráttu um hin ýmsu evrópusæti, liðið er fjórum stigum frá meistaradeildarsæti þegar sjö umferðir eru eftir.

Það er því ekkert í boði nema sigur í kvöld gegn andstæðingum sem eru svo gott sem fallnir. Pisa er níu stigum frá öruggu sæti og er liðið aðeins búið að vinna einn keppnisleik á árinu. Þegar allt deildartímabilið er skoðað hefur Pisa ekki unnið nema tvo leiki eftir 31 umferð.

Síðar um helgina eru spennandi slagir. Þar eru stórleikir þegar Bergamo mætir Juventus annars vegar og topplið Inter heimsækir Como hins vegar.

Föstudagur
18:45 Roma - Pisa

Laugardagur
13:00 Cagliari - Cremonese
13:00 Torino - Verona
16:00 Milan - Udinese
18:45 Atalanta - Juventus

Sunnudagur
10:30 Genoa - Sassuolo
13:00 Parma - Napoli
16:00 Bologna - Lecce
18:45 Como - Inter

Mánudagur
18:45 Fiorentina - Lazio
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 36 27 4 5 85 31 +54 85
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Juventus 36 19 11 6 59 30 +29 68
4 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
5 Roma 35 20 4 11 52 29 +23 64
6 Como 36 17 12 7 59 28 +31 63
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Lazio 36 13 12 11 39 37 +2 51
9 Udinese 36 14 8 14 45 46 -1 50
10 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
11 Sassuolo 36 14 7 15 44 46 -2 49
12 Torino 36 12 8 16 41 59 -18 44
13 Parma 35 10 12 13 25 42 -17 42
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 35 8 13 14 38 49 -11 37
16 Cagliari 36 9 10 17 36 51 -15 37
17 Lecce 36 8 8 20 24 48 -24 32
18 Cremonese 35 6 10 19 27 53 -26 28
19 Verona 36 3 12 21 24 57 -33 21
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner