Ísak Óli Ólafsson er nýr fyrirliði FH en hann tók við bandinu af Birni Daníel Sverrissyni sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil.
Ísak er miðvörður fæddur árið 2000 en hann fékk nýjan liðsfélaga sér við hlið þegar Svíinn Tobias Carlsson gekk til liðs við félagið í vetur.
Ísak er miðvörður fæddur árið 2000 en hann fékk nýjan liðsfélaga sér við hlið þegar Svíinn Tobias Carlsson gekk til liðs við félagið í vetur.
Tobias hefur spilað með liðum á borð við Häcken og Sirius í Svíþjóð. Ísak Óli var spurður að því á kynningarfundi Bestu deildarinnar í gær hvernig væri að spila með honum.
„Tobias er frábær leikmaður, með mikla reynslu úr sænsku deildinni. Hann er ótrúlega góður í fótbolta og við náum mjög vel saman, það er gott að spila með honum," sagði Ísak.
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)


