Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
Alli Jói: Ekki gleyma að þær eru Íslandsmeistarar
Ian Jeffs: Fannst þetta ekki jafn fyrri hálfleikur
Jón Óli um meiðsli og litla breidd: „Það situr gríðarleg þreyta í leikmönnum“
Edith stefnir á A-landsliðið
Matti Guðmunds svekktur: Vantar betri ákvörðunartökur á síðasta þriðjungi
Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi: Ekkert viss um að margir komi hérna og sæki stig
Gylfi: Ætla óska eftir því að Ingibjörg Lúcía fari að skora flottari mörk en þetta
Óskar Smári: Á endanum þegar þú bankar svona fast þá hljóta dyrnar að opnast
Anton Ingi svekktur þrátt fyrir fyrsta stigið
FH svaraði áfallinu með stórsigri: Þessi leikur var fyrir Kötlu
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
banner
   fös 10. apríl 2026 15:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Fagnað í vítaspyrnukeppninni gegn Grindavík á mánudag. Ásgeir átti góðan leik í bikarnum.
Fagnað í vítaspyrnukeppninni gegn Grindavík á mánudag. Ásgeir átti góðan leik í bikarnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vel varið.
Vel varið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu, við búumst við því að þetta verði erfitt og erum tilbúnir í slaginn," segir Ásgeir Orri Magnússon (2004), markvörður Keflavíkur, við Fótbolta.net.

Keflavík er nýliði í Bestu deildinni eftir að hafa komið upp úr Lengjudeildinni í gegnum umspilið í fyrra. Keflvíkingum er af langflestum spáð falli á komandi tímabili.

„Það kemur mér svo sem ekkert á óvart, við erum að koma upp og það er nokkuð eðlilegt að okkur sé spáð falli. Manni er sama hverju er spáð, við erum mættir til að taka þátt í mótinu og sýna að þeir sem eru að spá hafa rangt fyrir sér."

„Markmiðið fyrst og fremst er að halda okkur í deildinni."


Ásgeir Orri spilaði sína fyrstu leiki í efstu deild 2023 undir lok tímabilsins og var svo aðalmarkvörður Keflavíkur sumarið 2024 í Lengjudeildinni. „Ég spilaði tvo leiki 2023, það voru skemmtilegir tveir leikir. Ég fékk tvö víti á mig og eitt gult spjald á mig í fyrsta leiknum. Ég fékk svo '24 í Lengjudeildinni. Ég er bara tilbúinn í slaginn."

Ásgeir lék ekki í fyrra þar sem hann sleit krossband skömmu fyrir mót.

„Endurhæfingin var nokkuð erfið, reyndi alveg nokkuð á andlega. Þetta voru erfiðir átta mánuðir, en ég er loksins kominn aftur á völlinn og ég er tilbúinn."

„Ég tók einhverja heimskulega ákvörðun og fór í skallabolta vel fyrir utan teiginn, ég lenti beint á hnénu og krossbandið slitnaði."

„Það var dálítið erfitt andlega að fylgjast með í fyrra, mig langaði að vera með."


Þakklátur fyrir traustið
Ásgeir Orri er yngsti aðalmarkvörður deildarinnar. Hvernig er að fá traustið?

„Ég vissi ekki að ég væri yngstur, það er bara geðveikt. Ég þakka Keflavík fyrir traustið, er mjög þakklátur. Maður er meira spenntur en stressaður."

Eftir tímabilið 2025, vissi Ásgeir að hann yrði aðalmarkvörður liðsins á næsta tímabili?

„Það var ekkert skýrt að ég yrði aðalmarkvörður. Ég horfði auðvitað bara á þetta sem samkeppni milli mín og Sindra (Kristins Ólafssonar)."

Keflavík heimsækir Meistaravelli í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á sunnudag. „Skemmtilegt að mæta í stemningu í fyrsta leik á Meistaravöllum," segir Ásgeir sem er með það á bakvið eyrað að góð frammistaða í sumar gæti komið honum í U21 landsliðið.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner